Merkilegt fyrirbæri

Evrovision er merkilegt fyrirbæri. Það er alveg ótrúlega leiðigjarnt að upplifa hvað stigagjöfin er oft á tíðum fyrirsjáanleg. Annars var keppnin mjög jöfn núna og mér fannst mörg góð lög. Varð reyndar fyrir vonbrigðum með franska lagið þar sem flutningurinn var ekki að skila sér á stóra sviðinu þó að atriðið væri flott. 

 

Enn mikið rosalega stóðu þau Regína Ósk og Friðrik Ómar sig vel, þau geisluðu jafnvel enn meira nú en í undanúrslitunum. Það er ekki hægt að finna neitt að frammistöðunni, mikið kunnáttu fólk og ná að njóta sín í tætlur og áhorfendur hrífast með ( allavega þeir íslensku og dönsku! )  Grin

Fáklæddur keppandi í sveiflu.

 

Setti með mynd af Úkranísku söngkonunni, svona fyrir eiginmannin en hann kaus lagið hennar. Ég kaus aftur á móti Tyrki en Dani í undanúrslitunum. Langaði líka að kjósa Finnana. Fannst Sænska lagið ekkert spes fyrst en sættist við það í aðalkeppninni, líklega eru það fordómar gagnvart söngkonunni sem áttu hlut að máli. Fannst það ansi gott hjá eiginmanninum að líkja henni við geimveru þar sem hún virtist svo strekkt í framan, sérstaklega kring um augum og upp á ennið! Þá er sú Úkraníska mikið flottari og er ég alveg sátt við mat eiginmannsins þar. FootinMouth


mbl.is Ísland endaði í 14. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stefán Þór Steindórsson

Brjóstin á þessarri dömu eru samt örugglega helmingi yngri en hún sjálf og þannig konur eru bara ekki minn tebolli... Hún er flott samt að öllu öðru leyti og stóð sig mjög vel

Stefán Þór Steindórsson, 25.5.2008 kl. 09:28

2 identicon

Hahaha...og takk svo mikið fyrir mydinn!

Viktor Mar (IP-tala skráð) 25.5.2008 kl. 14:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband