23.3.2009 | 20:32
Einn góður sem kom í tölvupósti
Ég horfði gagnrýnum augum á konuna, sem ég hef verið giftur í 30 ár og sagði:
Heyrðu elskan fyrir 30 árum áttum við ódýra íbúð, ódýran bíl, við sváfum á sófanum í stofunni, horfðum á 10 tommu svart/hvítt sjónvarp og á hverju kvöldi iðkaði ég bólfarir með viljugri 25 ára stelpu.
Núna á ég 80 milljóna hús, 15 milljóna bíl, rúm á stærð við skeiðvöll og 50 tommu flatskjá en þarf að sætta mig við það á hverju kvöldi, að fara í bólið með þreyttri 55 ára konu. Ég fæ ekki séð að þú hafir haldið í við þróunina hér !
Ég verð að játa að ég á skynsama konu : Hún leit snöggvast á mig og sagði um leið:
Ekki vandamálið : Drífðu þig bara út og finndu þér 25 ára viljuga stelpu! Ég sé um að þú fáir hitt aftur: Ódýra íbúð, bíldruslu og ódýrt svart/hvítt sjónvarp !
eftir þessi 30 ár, veistu að ég meina það sem ég segi.
Er konan mín ekki frábær - Grái fiðringurinn hvarf á einu andartaki !!!
Flokkur: Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 20:38 | Facebook
Athugasemdir
Hæ Snúlla ! Bara varð að fá að deila þessum inni á facebook, var það ekki í lagi ? Hlakka til að sjá þig á næstunni.
Steingerður (IP-tala skráð) 27.3.2009 kl. 18:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.