Að hungra í ruslfæði byrjar í móðurkviði

Las frétt á BBC news sem gengur út á það að börn mæðra sem nærast mikið á ruslfæði  á meðgöngunni eru í meiri hættu á offitu vandamálum síðar á ævinni. Mér finnst ég nú hafa heyrt talað um þetta áður og að þetta sé ekkert nýtt, en allavega greip athygli mína.

Linkur á frétt: http://news.bbc.co.uk/2/hi/health/6940852.stm

Ætlaði að setja inn myndband um fréttina en það tókst ekki, kannski of stór skrá! Myndbandið er hægt að nálgast á linknum fyrir ofan Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ekki undrar það mig, sem betur fer koma fleiri og fleiri upplýsingar til okkar til bættrar heilsu !

flottur hundur sem þú átt!!!! 

kærleikur og knús !

er að pæla í því að þú skrifar að þú sért sóði hehehehe fyndið 

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 2.7.2008 kl. 08:51

2 Smámynd: Sólveig Klara Káradóttir

Siska er alveg yndisleg, gáfuð, góð og líka fjörug.

Það hefur verið á aðgerðalistanum mínum að setja inn lýsingu á sjálfri mér og þar var ætlunin að útskýra þetta með sóða nafnbótina og slúbertinn

Takk fyrir að fylgjast með Steina.  

Sólveig Klara Káradóttir, 2.7.2008 kl. 12:46

3 identicon

Já, þetta er alveg magnað. Það er greinilegt að maður þarf að passa sig á hvað borðað er þegar ófrískan kemur yfir.

Daníel Þórhallsson (IP-tala skráð) 5.7.2008 kl. 14:47

4 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

Já, thad er ótrúlegt hvad thetta er mikilvægt. Madur veit thetta eiginlega alveg, thegar madur heyrir thetta.

Sem betur fer var ég alveg sólgin í grænmeti og áveksti á medgøngunni (sést reyndar ekki á formunum núna), en át thó slatta af nammi. Ekki alveg nógu gott. Fannstu nokkud nammid á hótelherberginu ???

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 6.7.2008 kl. 19:09

5 Smámynd: Sólveig Klara Káradóttir

Vissi ekki að þú gætir orðið óléttur Daníel!

Ég hugsa að þetta hafi verið í nokkuð góðu jafnvægi hjá þér

Ég fann ekki nammið og þeir sögðu á lestarstöðinni að öllu matarkyns væri hent sem finndist hjá þeim. Búhuhu snögt snögt!

ég sendi þér bara vænan pakka þegar ég er flutt suður! Flyt í byrjun sept.

Sólveig Klara Káradóttir, 10.7.2008 kl. 11:37

6 identicon

jújú, ég get verið ófrískur, hefur þú ekki séð "Junior", þar sem Arnold Swarthsneigger er vísindamaður og verður ófrískur..

http://www.lazydork.com/movies/junior.jpg

Annars er líka allt hægt í bíómyndum

Daníel Þórhallsson (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 20:13

7 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

Vertu ekki ad thví elsku Solla. Veistu thad var bara svo gaman ad sjá thig. Hafdi thó smá samviskubit yfir ad thú værir ad gera thér svona langa ferd.

Spennandi ad heyra um flutningana. Vona ad allt gangi vel.

Hugsa sér, loksins flytur thú í bæinn, Sigga flytur til Danmerkur, og hvad næst.

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 11.7.2008 kl. 20:00

8 Smámynd: Betsý Árna Kristinsdóttir

 Já matarræðið skiptir svo miklu máli.

Maður verður klárlega að a.t.h. hvað maður lætur ofan í sig á meðgöngu, ekki viljum við að elsku krílin taki upp okkar ósiði

Betsý Árna Kristinsdóttir, 11.7.2008 kl. 20:04

9 Smámynd: Sólveig Klara Káradóttir

Mér finnst afskaplega mikilvægt að leyfa sér að njóta þess að svindla og þá er maður ekkert að svindla Verður að leyfa sér að gera sér góðan dag með sætindum annað slagið og sleppa móralnum og hugsa að maður eigi nú alveg skilið smá dekur.

Bara að það fari ekki úr böndunum og verði daglegt brauð

Solla það var ofsalega gaman að hitta ykkur. Verð að finna tíma til að setja inn myndir og segja frá þeirri ferð. Er bara svo hrikalega upptekin.  Var að koma úr bústað og búin að plana hestaferð um helgina síðan göngu með Viktori og fleirum um Þorvaldsdal og svo hjólaferð til Grenivíkur og skipuleggja 3ja daga rafting! Síðan þarf ég einhvernveginn að finna tíma til að mála og pakka niður!!!

Daníel það er auðvitað allt hægt ef maður opnar möguleikana fyrir því, bara spurning hvenær

Sólveig Klara Káradóttir, 12.7.2008 kl. 00:52

10 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

Rosalega er mikid fjør og ferdir hjá thér, Solla mín. Gaman ad heyra ad thú hafir thad svona gott. kær kvedja, Solla

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 12.7.2008 kl. 21:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband